Á forsíðu PEEL-námsmat
Upplýsingavefur um PEEL-verkefnið
Upplýsingar um námsmatsvef PEEL
Hvað er árangursríkt námsmat?
Jákvætt og neikvætt námsmat
Leiðsagnarmat - Frammistöðumat - Sjálfsmat/jafningjamat - stöðugt alhliða námsmat
Reynslusögur PEEL-kennara um námsmat
Heimildir

www.kennarasogur.is


Eitt af þeim verkefnum sem kennarar í PEEL-verkefninu hafa áhyggjur af er námsmatið. Kennararnir hafa tekið eftir því að nemendur læra ekki af mistökum í prófi, lesa ekki fyrirmælin, gera sömu mistökin aftur og aftur og eiga erfitt með að sjá tilgang með náminu. Þeir vilja auka ábyrgð nemenda á eigin námi jafnframt því að nemendur taki meira þátt í námsmatinu og geri sér grein fyrir þætti námsmatsins strax í upphafi námsins.

Í gagnagrunni PEEL eru núna um 120 verkefni/sögur um námsmat og hér má finna nokkrar áhugaverðar sögur úr kennslunni þar sem PEEL-kennarar eru að prófa sig áfram með nýjar áherslur í námsmati. Þeir eru einnig með sögur af hefðbundnum skriflegum prófum, um undirbúning prófa og hvernig hægt er að búa nemendur betur undir próf þannig að þeir læri af þeim.
Námsmatið er einn þáttur í að auka árangursríkt nám og fjölbreytni í skólastarfi.

Ég hef valið þær sögur sem mér finnst góðar og reynt að hafa ólík og fjölbreytt dæmi. Vitaskuld eru þarna ýmis dæmi sem eru ekki ný af nálinni og margir þekkja eflaust einhver dæmi úr eigin kennslu. En það er von mín að þessar reynslusögur gagnist íslenskum kennurum og vonandi bætast nýjar sögur við.

Samkvæmt Aðalnámsskrá grunnskóla er mikilvægt að leggja áherslu á fjölbreytt námsmat og að námsmatið sé hluti af skólastarfinu. Á þessum vef eru einnig upplýsingar um árangursríkt námsmat, jákvætt námsmat og fjölbreytt námsmat.

 

 
©Eygló R. Sigurðardóttir - 2007
Þýtt og staðfært með leyfi frá Ian Mitchell, Monash University, Australia